Hvað getur verið að ef:
- Vatnið er heitt í köldum krönum?
a) Líklega er millirennsli í húskerfinu, eða jafnvel í nálægum húsum.
b) Heitar og kaldar vatnslagnir liggja saman illa einangraðar. - Högg eða smellir eru í vatnslögnum?
a) Oft heyrist í einstreymislokum og getur það verið eðlilegt.
b) Bilun gæti verið í lögnum eða vél í gangi sem notar vatn og lokar snöggt fyrir. - Óhreinindi eru í vatni?
a) Gæti verið millirennsli, athuga hitastýrð blöndunartæki.
b) Kaldavatnslagnir í húskerfinu gætu verið farnar að tærast.
c) Óhreinindi gætu komið úr dreifikerfi vatnsveitu eftir framkvæmdir. - Vont bragð er af vatninu?
a) Nýjar lagnir eða nýviðgerðar, snittolía.
b) Gæti verið millirennsli, athuga hitastýrð blöndunartæki.
c) Hugsanlega úr dreifikerfinu eftir framkvæmdir. - Húsið er vatnslaust eða þrýstingur lágur?
a) Verið er að vinna í götunni.
b) Lokað hefur verið fyrir inntak.
c) Frosið er í vatnslögnum eða stífla í innanhússlögnum.
d) Leki er í heimæðinni eða hún í sundur. - Suð er í vatnslögnum?
a) Líklega er sírennsli einhvers staðar í húskerfinu. Ef lokað er fyrir inntakslokann á suðið að hætta, ef ekki þá gæti verið leki í heimæð.
b) Athugið blöndunartæki og klósettkassa.
Bilanir utanhúss á að tilkynna strax til Norðurorku.
Bilanir innanhúss að stofnloka eru á verksviði pípulagningameistara.

BAKVAKT