Rafveita hefur verið starfrækt á Akureyri frá árinu 1922 fyrst undir merkjum Rafveitu Akureyrar en frá árinu 2000 í sameinuðu veitufyrirtæki Norðurorku. Rafveitan var í upphafi, framleiðslu-, sölu- og dreifingarfyrirtæki. Með lögum frá árinu 2003 var ákveðið að gera breytingar sem eiga að hafa það markmið að koma á samkeppnismarkaði í framleiðslu og sölu á raforku. Þetta felur í sér að skilið er á milli þriggja megin þátta, (1) raforkuframleiðslu og sölu, (2) flutnings og loks (3) dreifingar. Í þessu fellst að raforkuframleiðsla og sala á að vera í höndum sjálfstæðra fyrirtækja sem keppa á samkeppnismarkaði. Hins vegar var ákveðið að stofna sérstakt fyrirtæki, Landsnet sem sér um flutning raforkunnar frá framleiðendum til stórnotenda og dreifiveitna í sveitarfélögunum. Í sveitarfélögunum og sveitum landsins taka síðan dreifiveiturnar við og sjá um að koma rafmagninu til viðskiptavina, íbúðarhúsnæðis og fyrirtækja.
Norðurorka uppfyllti framangreindar lagakröfur með því að skilja á milli dreifingar og framleiðslu og sölu. Í dag sér Norðurorka um dreifinguna og hefur til þess sérleyfi á Akureyri en Fallorka dótturfyrirtæki Norðurorku sér um framleiðslu og smásölu á raforku og er fyrirtækið með viðskipti um allt land. Mest af raforkunni sem Fallorka selur kaupir hún í heildsölu af framleiðendum og þar er Landsvirkjun langstærsti seljandinn.

BAKVAKT