Veistu:
- Að lekastraumsrofinn á rafmagnstöflunni slær út þegar rafmagn leiðir til jarðar í húsinu
- Að öryggin á rafmagnstöflunni slá út þegar skammhlaup verður á milli fasa í raflögninni eða í tæki
- Að vatn má aldrei komast í raflögn eða inn í rafmagnstæki
- Að rafsegulsvið frá hrærivél í eldhúsi er svipað og frá spennistöð
- Að rafsegulsvið frá 220.000 V háspennulínu með 100.000 kW álagi er um 0,02 mikrotesla í 200 metra fjarlægð eða jafn mikið og frá reiðhjóli með ljósum
- Að flestir spennupúlsar sem trufla rafeindabúnað verða til í sömu raflögn og rafeindabúnaðurinn er tengdur við
- Að með þekkingu, árvekni og aðgæslu er hægt að koma í veg fyrir flest slys og flesta bruna sem rekja má til rafmagns

BAKVAKT