Verðskrá og skilmálar

Norðurorka selur afnot af heitu vatni úr veitukerfi sínu samkvæmt verðskrá og reglugerð Norðurorku fyrir heitt vatn. Norðurorka takmarkar allajafna ekki

Verðskrá og skilmálar

Norðurorka selur afnot af heitu vatni úr veitukerfi sínu samkvæmt verðskrá og reglugerð Norðurorku fyrir heitt vatn.

Norðurorka takmarkar allajafna ekki aðgang húsveitu að vatni umfram það sem heimæð og veitukerfi gera.  Þó er veitunni heimilt að setja upp búnað hjá notanda, sem tryggir aðra notendur gegn óeðlilegum þrýstingsbreytingum og er starfsmönnum veitunnar einum heimilt að breyta stillingu hans.

Verðskrá fyrir afnot af heita vatninu skiptist í tvær grunneiningar (1) fastgjald og (2) rúmmetragjald eða (2) kílóvatt-stundagjald (aðeins í Reykjaveitu).

Norðurorka áskilur sér rétt til að ákveða lágmarksstærð mælis fyrir hverja húsveitu. Fastgjald ákvarðast af stærð vatnsmælis eins og nánar kemur fram í verðskrá.

Virðisaukaskattur á húshitun er 7%.

Frá og með 1. janúar 2011 féll niður endurgreiðsla á hluta virðisaukaskatts í kjölfar breytinga á lögum um virðisaukaskatti. Skatturinn var 2,66% en varð eftir breytinguna 7,0%.*

Þar til vatnsmælir hefur verið settur upp eða ef vatnsmælir, húsveita eða annar búnaður bila þannig að mæling bregst, áætlar veitan vatnsnotkun með hliðsjón af hitaþörf hússins.  Hafi áhleyping eða tenging ekki átt sér stað einu ári eftir að heimlögn er tilbúin til tengingar við húsveitu hefst innheimta samkvæmt verðskrá.

Grunnverð fyrir sumarhús, frístundahús og sambærileg hús er fast gjald og lágmarks­gjald sem samsvarar gjaldi fyrir 300 m³ af heitu vatni. Þar sem gjald fyrir afnot af heitu vatni eru samkvæmt kílóvattsstundamælingu skal lágmarksgjaldið samsvara gjaldi fyrir 12.800 kílóvattsstundir (kWh).

Stilling á hemli gildir í eitt ár frá áramótum til áramóta.  Breytingu á vatnsrennsli til aukningar er hægt að gera hvenær sem er en til minnkunar einu sinni á ári um áramót.  Húseigandi getur farið fram á að settur sé mælir í staðinn fyrir hemil en er þá  bundinn við mæli upp frá því.

Gjaldskrá hitaveitu má sjá í heild sinni á vef Stjórnartíðinda.

---

*Ástæður endurgreiðslunar voru þær að  aðstæður við að koma upp hitaveitum vítt og breytt um landið hafa verið mjög misjafnar og kostnaður þá sömu leiðis.  Með endurgreiðslunni var verið að jafna skattgreiðslum þannig að þeir sem bjuggu við dýrar veitur væru ekki að bera hlutfallslega hærri skatta vegna þess.  Fjármálaráðuneytið taldi að verðumunur milli veitna væri orðinn svo óverulegur að ekki væru lengur forsendur fyrir endurgreiðslunni.  Þessu var mótmælt af hálfu Norðurorku vegna Reyjaveitu en hún var kostnaðarsöm í byggingu og verðskrá þar því töluvert hærri en í öðrum hitaveitum Norðurorku.

Svæði

RANGÁRVELLIR, 603 AKUREYRI
KT: 550978-0169
SÍMI 460 1300 - FAX 460 1301
NO@NO.IS
OPNUNARTÍMI ÞJÓNUSTUVERS: kL. 8 - 16

BAKVAKT

Símar bakvakta utan opnunartíma

HITAVEITA: 892 7305
VATNSVEITA: 892 7305
RAFVEITA: 892 1514
ÓLAFSFJÖRÐUR: 893 1814

Rauntölur Norðurorku

Útihiti Akureyri   12,0 °C Vatnsvinnsla 258,7 l/s
Dæling og hitastig frá Laugalandi 113,4 l/s   88,6 °C
Dæling og hitastig frá Hjalteyri 76,4 l/s   86,9 °C
Rafmagnsnotkun Akureyri 7,4 MW