Sumarhús

Verðskrá fyrir frístundahús, sumarhús og önnur þess háttar hús er almenn verðskrá Norðurorku á hverju dreifiveitusvæði. Þó ber að hafa í huga að meta

Sumarhús

Verðskrá fyrir frístundahús, sumarhús og önnur þess háttar hús er almenn verðskrá Norðurorku á hverju dreifiveitusvæði.

Þó ber að hafa í huga að meta þarf í hverju falli hvort tæknilegar og fjárhagslegar forsendur eru fyrir tengingu húsa þessara við veitukerfið og áskilur Norðurorka sér rétt til þess að setja sérstök skilyrði fyrir tengingu þegar veruleg frávik eru fyrir hendi eða í versta falli að hafna tengingu húss við veitukerfið.

Meðal skilyrða sem kunna að verða sett eru að eigandi fasteignar skuldbindi sig til þess að kaupa ákveðið lágmarks magn vatns til þess að tryggja eðlilega nýtingu vatnsins sem orkumiðils.

Sú almenna regla gildir um frístundahús/sumarhús að lágmarks kaup þeirra skulu vera 300 rúmmetrar á ári eða 12.800 kílóvattsstundir í orkumælingu (Reykjaveita).

Annað atriði sem rétt er að benda á er að sú skylda hvílir á eigendum frístundahúsa, hesthúsa o.s.frv. að koma fyrir sérstökum tengikassa utan á húsum sínum þar sem inntaki, tengigrind og öðrum nauðsynlegum búnaði skal komið fyrir, eins og nánar er fjallað um undir tæknilegum skilmálum hér til hliðar.

Svæði

RANGÁRVELLIR, 603 AKUREYRI
KT: 550978-0169
SÍMI 460 1300 - FAX 460 1301
NO@NO.IS
OPNUNARTÍMI ÞJÓNUSTUVERS: kL. 8 - 16

BAKVAKT

Símar bakvakta utan opnunartíma

HITAVEITA: 892 7305
VATNSVEITA: 892 7305
RAFVEITA: 892 1514
ÓLAFSFJÖRÐUR: 893 1814

Rauntölur Norðurorku

Útihiti Akureyri   9,1 °C Vatnsvinnsla 291,0 l/s
Dæling og hitastig frá Laugalandi 113,4 l/s   88,6 °C
Dæling og hitastig frá Hjalteyri 102,8 l/s   86,9 °C
Rafmagnsnotkun Akureyri 2,0 MW