Öryggishandbók Samorku má nálgast á heimasíðu Samorku.
Fallorka ehf. er dótturfyrirtæki Norðurorku. Fallorka kaupir og selur raforku um allt land ásamt því að byggja virkjanir til raforkuframleiðslu. Heimasíða Fallorku.
Orkusetur er staðsett á Borgum við Norðurslóð á Akureyri. Hlutverk Orkuseturs er að stuðla að aukinni vitund almennings og fyrirtækja um skilvirka orkunotkun og möguleika til orkusparnaðar. Heimasíða Orkuseturs.
ÍSOR vinnur að verkefnum og rannsóknum á sviði náttúrufars, orkumála og annarra auðlindamála. Heimasíða ISOR.
Umhverfisstofnun starfar samkvæmt lögum nr. 90/2002. Markmið hennar er að stuðla að velferð almennings með því að beita sér fyrir heilnæmu umhverfi, öruggum neysluvörum og verndun og sjálfbærri nýtingu náttúruauðlinda. Heimasíða Umhverfisstofnunar.
Neytendastofa tryggir öryggi og réttindi neytenda í viðskiptum, annast framkvæmd laga um neytendavernd. Heimasíða Neytendastofu.
Landsnet hf var stofnað á grundvelli raforkulaga sem samþykkt voru á Alþingi á vormánuðum 2003. Hlutverk fyrirtækisins er að annast flutning raforku og stjórnun raforkukerfisins. Heimasíða Landsnets.
Leiðakerfi neytenda er vefgátt þar sem neytendur geta nálgast upplýsingar og kannað rétt sinn, fengið aðstoð við að bera fram kvartanir, sent fyrirspurnir til hlutaðeigandi eftirlitsaðila og að lokum skotið máli - ef við á - til úrlausnar hjá kvörtunarnefndum eða öðrum úrlausnaraðilum. Orkumál á heimasíðu leiðakerfis neytenda.
Samstarf Norðurlandanna í Orkumálum. Norðurlöndin hafa áratugum saman átt í viðamiklu formlegu samstarfi og er það meðal þess elsta og umfangsmesta svæðasamstarfs í heimi. Sérstaklega er fjallað um samstarf í orkumálum á vefsetrinu.

BAKVAKT