Forvarnir

Fyrirhyggja á öllum sviðum er eitthvað sem við vitum öll að skilar sér alltafmeð einum eða öðrum hætti Hér að neðan eru nefnd nokkur dæmi um atriði sem

Forvarnir

Fyrirhyggja á öllum sviðum er eitthvað sem við vitum öll að skilar sér alltaf
með einum eða öðrum hætti

Hér að neðan eru nefnd nokkur dæmi um atriði sem við viljum biðja viðskiptavini okkar að hafa í huga almennt og eftir því sem við á.

Aðgengi að inntaksrýmum, inntakskrönum o.fl.

Mjög mikilvægt er að virða þær reglur sem gilda um inntaksrými og nýting þeirra sé í samræmi við þær reglur. Hafa ber í huga að á hitaveituinntökum eru öryggislokar sem eiga að bregðast við þrýstingsbreytingum með því að opnast og hleypa vatni út. Því er mikilvægt að frárennsli frá þeim sé rétt tengt við niðurföll (bakrás). Af öryggisástæðum er nauðsynlegt að tryggja öruggt aðgengi að inntaksrýmum og inntakskrönum og að merkingar séu skýrar. Þetta er einnig mjög mikilvægt að hafa í huga í fjölbýlishúsum, þar sem nauðsynlegt er að merkja krana fyrir hverja íbúð og tryggja aðgengi allra íbúðaeigenda. Ekki er heimilt að þilja inntök og inntakskrana af á neinn hátt, né nýta inntaksrýmið sem geymslu með þeim hætti að inntök og kranar lendi á bak við hillur eða dót, sem þar er sett inn. Komi upp leki er mjög mikilvægt að hægt sé að loka hratt og örugglega fyrir inntakskrana bæði heitavatnsins og kaldavatnsins. Hægt er að nálgast merkingar fyrir inntök og inntakskrana í þjónustuveri Norðurorku.

Hafa ber í huga að möguleikinn til skjótra viðbragða getur skipt sköpum um að koma í veg fyrir tjón og eftir atvikum björgun verðmæta.


Tengingar við vaska og tæki sem taka inn á sig vatn - Láttu fagmann vinna verkið!

Mikilvægt er að leita til fagmanna þegar tengja á vaska og tæki sem taka inn á sig vatn. Sama á við um tengingar sérhæfðra heimilistækja (s.s. eldavéla, bakarofna o.s.frv.), enda mikilvægt að fylgja reglum og leiðbeiningum framleiðenda. Mörg dæmi eru um að rangur frágangur leiðir til stór tjóna. Einnig kann ábyrgð framleiðenda að falla niður er fylgt leiðbeiningum eða ákvæðum laga og reglugerða um viðkomandi búnað.

Ertu að fara í framkvæmdir á lóð?

Norðurorka beinir þeim tilmælum til húseigenda sem hyggjast grafa frá húsum sínum, t.d. vegna drenlagna, jarðvegsskipta eða af öðrum ástæðum, að leita upplýsinga hjá okkur áður en framkvæmdir hefjast. Hitaveitu-, raf - og vatnslagnir liggja örugglega einhverstaðar inn í húsið þitt! Norðurorka óskar jafnframt eftir að haft sé samband við yfirverkstjóra fyrirtækisins vegna slíkra framkvæmda. Er það gert til þess að við höfum möguleika á því að skoða og meta ástand lagna vegna mögulegrar endurnýjunar sem og aðhafa tækifæri til þess að fylgjast með frágangi umhverfis þær þegar að þeim er fyllt.

Þrýstijöfnun á vatnsinntök (einkum kalt vatn)

Dreifikerfi vatns eru mikil að vöxtum og nauðsynlegt að tryggja fullnægjandi flutningsgetu og þrýsting. Þetta getur hins vegar leitt til þess að þrýstingur sé misjafn eftir hverfum, hæðarstöðu húsa o.fl. Því er ástæða til þess að fagmaður meti hvort rétt sé að setja upp þrýstijöfnun við inntak húsa. Hafa ber í huga að þrýstijöfnun er einnig öryggisatriði með tilliti til blöndunar á heitu vatni og köldu. Það er á ábyrgð húseiganda að koma upp nauðsynlegum þrýstijöfnunarbúnaði.

 

Hitastilling og blöndun vatns - mjög mikilsvert öryggisatriði

Hitaveituvatn fer mjög heitt frá dælustöð en einhver kæling verður á leiðinni í húsin. Flest neysluvatnskerfi taka vatn beint frá inntali hússins að töppunarstað (eldhúskrana, sturtu o.s.frv.). Ef vatn er látið renna í 2 - 4 mínútur má gera ráð fyrir að hitastig þess nái frá 60°C og allt að 80°C (sumstaðar jafnvel enn heitara) sem getur valdið alvarlegum brunaslysum. Því er mjög mikilvægt að komið sé í veg fyrir slíka hættu með viðeigandi aðgerðum í hönnun neysluvatnskerfa og með hitastýrðum blöndunarlokum eða hitastýrðum blöndunartækjum við alla töppunarstaði. Vakin er athygli á því að samkvæmt byggingarreglugerð er skylt að koma upp umræddum búnaði í öllum nýbyggingum og er það á ábyrgð byggingaraðila og byggingarstjóra að tryggja slíkt.

 

Millirennslishætta í blöndunartækjum

Í blöndunartækum mætast heitt og kalt vatn til blöndunar eins og nafnið segir til um. Hins vegar geta komið upp bilanir í tæjum sem leiða til þess að vatn kemst milli kerfa, sé þrýstingur á kalda vatninu t.d. hærri kemst kalt vatn inn í heitavatnslagnir og öfugt. Þetta getur síðan leitt til þess að langan tíma getur tekið að fá það hitastig á vatnið sem óskað er eftir þegar skrúfað er frá. Verði húseigendur varir við þetta hjá sér er mikilvægt að leita til pípulagningarmeistara til að finna orsakirnar og bæta úr.

Svæði

RANGÁRVELLIR, 603 AKUREYRI
KT: 550978-0169
SÍMI 460 1300 - FAX 460 1301
NO@NO.IS
OPNUNARTÍMI ÞJÓNUSTUVERS: kL. 8 - 16

BAKVAKT

Símar bakvakta utan skrifstofutíma

HITAVEITA: 892 7305
VATNSVEITA: 892 7305
RAFVEITA: 892 1514
ÓLAFSFJÖRÐUR: 893 1814

Rauntölur Norðurorku

Útihiti Akureyri   14,4 °C Vatnsvinnsla 200,5 l/s
Dæling og hitastig frá Laugalandi 22,8 l/s   86,7 °C
Dæling og hitastig frá Hjalteyri 95,3 l/s   86,9 °C
Rafmagnsnotkun Akureyri 10,1 MW