Húseigendur, íbúar, starfsmenn o.s.frv. geta gert mjög margt til þess að minnka þá hættu sem sannanlega stafar af rafmagni. Mikilvægt er að gæta varkárni í allri umgengni gæta þess að tæki, búnaður og lagnir séu lagfærðar strax en ella tekin úr umferð og endurnýjuð.
Á heimasíðu Neytendastofu má finna mjög gott fræðsluefni og upplýsingarit um rafmagnsöryggi. Þar má til dæmis finna efni um ástand raflagna í hesthúsum og er lærdómsríkt að kynna sér það efni og annað sem á heimsíðunni er birt.

BAKVAKT