Orkusparnaður er í raun sú viðleitni að minnka það orkumagn sem maður notar. Hægt er að ná fram orkusparnaði með betri orkunýtni þar sem sama niðurstaða fæst með minni orkuneyslu. Á heildina litið stuðlar orkusparnaður að fjárhagslegum sparnaði, betra umhverfi og auknu öryggi.
Í nútíma samfélagi gegnir orka sífellt stærra hlutverki. Rafmagnsnotkun heimilanna eykst stöðugt og hefur aukist um fimmtung undanfarinn áratug.
Rafmagnstækjum fjölgar sífellt á heimilum landsins. Um 10% raforkunotkunar heimilistækja fer oft á tíðum í svokallaða biðstöðu eða "Stand by" notkun. Hafa ber í huga að í biðstöðu eyða rafmagnstæki orku án notkunar. Tæki í biðstöðu skila engu til notenda nema hærri rafmagnsreikningi og er þ.a.l. oft kölluð rafmagnsleki enda seytlar hægt og bítandi út raforka engum til gagns. Auðveldasta leiðin til að minnka biðstöðu-notkun er að slökkva alveg á tækjum og helst að taka úr sambandi.
Um 20% af raforkunotkun heimila fer til lýsingar og með því að skipta út hefðbundnum glóperum yfir í sparperur má draga verulega úr raforkunotkun. Sparperur nota einungis 20% af þeirri orku sem glóperur þurfa til að gefa sama ljósstyrk. Að auki endast sparperur allt að fimmtán sinnum lengur. (Heimild: www.orkusetur.is)
Orkunotkunin á Íslandi á hvern íbúa er með því mesta sem þekkist og má trúlega rekja til kalds loftslags sem búið er við og dreifð byggð krefst mikillar orku til húshitunar og samgangna. Einnig hefur mikil áhrif í samanburði við aðrar þjóðir hversu orkufrekir mikilvægir atvinnuvegir okkar eru s.s. fiskveiðar og stóriðja.
En á móti kemur að hlutfall endurnýjanlegra orkugjafa er mun hærra hér en hjá öðrum þjóðum og hefur aukist mikið á undanförnum áratugum. Árið 2008 var hlutfallið um 85% af heildarorkunotkun landsmanna, samanborið við 70% árið 2003.
En þrátt fyrir að við búum svo vel að eiga nægar orkulindir í fallvötnum og jarðhita er ekki þar með sagt að við þurfum ekki að spara þær. Með bættri nýtingu á innlendri orku fáum við meira út úr þeim fjárfestingum sem liggja í orkumannvirkjum landsins. Því betur sem við nýtum þessar auðlindir því meiri verður arðurinn af þeim.

BAKVAKT