Fyrirtæki

Norðurorka hf. kappkostar að veita fyrirtækjum á þjónustusvæði sínu markvissa og góða þjónustu.  Hafa ber í huga að þrátt fyrir að Norðurorka vinni á

Fyrirtæki

Norðurorka hf. kappkostar að veita fyrirtækjum á þjónustusvæði sínu markvissa og góða þjónustu.  Hafa ber í huga að þrátt fyrir að Norðurorka vinni á þremur megin viðskiptasviðum, þ.e. hitaveitu, vatnsveitu og rafveitu þá er það aðeins á Akureyri sem veitt er þjónusta á öllum þessum sviðum.  Í öðrum sveitarfélögum geta fyrirtæki því þurft að snúa sér til annarra veitufyrirtækja samhliða Norðurorku hf.

Þjónustusvæði Norðurorku eru eftirfarandi:

Ólafsfjörður - heitt vatn

Hrísey - heitt og kalt vatn

Hörgársveit - heitt vatn og kalt vatn (á nánar tilgreindum svæðum - ekki innan alls sveitarfélagsins)

Akureyri - heitt og kalt vatn og raforkudreifing

Eyjafjarðarsveit - heitt og kalt vatn (á nánar tilgreindum svæðum - ekki innan alls sveitarfélagsins)

Svalbarðsstrandarhreppur - heitt og kalt vatn ( á nánar tilgreindum svæðum - ekki innan alls sveitarfélagsins)

Grýtubakkahreppur - heitt vatn - (á nánar tilgreindum svæðum - ekki innan alls sveitarfélagsins)

Þingeyjarsveit - heitt vatn -  (á nánar tilgreindum svæðum - ekki innan alls sveitarfélagins)

Þjónusta við fyrirtæki getur snúið að almennri þjónustu við sölu á heitu vatni, neysluvatni og rafmagnsdreifingu, en einnig og ekki síður að svonefndum stórnotkun í hverjum miðlinum sem er.  Þá snýr þjónusta að fyrirtækjum einnig að nýbyggingum og þar með tengingu þeirra við veitukerfin með nýjum heimlögnum.  Sama á einnig við um endurnýjun eða endurbyggingu húsa þar með talið þegar hús eru tekin í breytta notkun frá því sem áður hefur verið.  Kallar þetta oftar en ekki á endurnýjun heimlagna.

Í valmynd hér vinstra megin er farið í gegnum helstu atriði sem hafa ber í huga í þjónustu við fyrirtæki.

Svæði

RANGÁRVELLIR, 603 AKUREYRI
KT: 550978-0169
SÍMI 460 1300 - FAX 460 1301
NO@NO.IS
OPNUNARTÍMI SKRIFSTOFU: kL. 8 - 16

BAKVAKT

HITAVEITA: 892 7305
VATNSVEITA: 892 7305
RAFVEITA: 892 1514
ÓLAFSFJÖRÐUR: 893 1814

Rauntölur Norðurorku

Útihiti Akureyri   -6,3 °C Vatnsvinnsla 313,6 l/s
Dæling og hitastig frá Laugalandi 86,6 l/s   86,6 °C
Dæling og hitastig frá Hjalteyri 138,7 l/s   87,1 °C
Rafmagnsnotkun Akureyri 8,0 MW