Áður en ráðist er í framkvæmdir, hvort heldur eru nýbyggingar, viðbyggingar eða endurbætur, er mikilvægt að kynna sér þær kröfur sem gerðar eru og koma fram í mannvirkjalögum, skipulags- og byggingarlögum og öðrum þeim lögum og reglugerðum sem eru í gildi. Langbest er að leita til fagfólks á hverju sviði, hönnuða, verkfræðinga, iðnmeistara o.s.frv.
Gagnlegar upplýsingar um lög, reglugerðir, leiðbeiningar o.fl. á sviði mannvirkja má m.a. finna á heimasíðu Mannvirkjastofnunar.
Í tæknilegum tengiskilmálum fyrir hitaveitur og rafveitur koma fram ýmsar kröfur sem gerðar eru til húseigenda og lúta að tengingu mannvirkja og þar með neysluveitna þeirra við dreifikerfi hitaveitu og rafveitu.
Tæknilegir tengiskilmálar hitaveitu.
Tæknilegir tengiskilmálar rafveitu.
Eftirfarandi reglugerðir gilda um eftirfarandi veitur á veitusvæði Norðurorku hf.
Hitaveita Akureyrar nr. 186/1989.
Hitaveita Ólafsfjarðar nr. 58/1989.
Hitaveita Hríseyjar nr. 323/1973.
Rafveita Akureyrar nr. 458/1979.

BAKVAKT