Ráðgjöf
Í tæknilegum tengiskilmálum hitaveitu koma fram ýmis atriði sem fela í sér leiðsögn og ráð um það með hvaða hætti húsveitur eru uppbyggðar og hvaða kröfur eru til þeirra gerðar. Í því sambandi þarf að hafa í huga að skilmálarnir hafa reglugerðar gildi og eru þannig hluti af þeim reglugerðum sem um veiturnar gilda.
Í skilmálunum er hönnuður skilgreindur með þessum hætti. "Hönnuður er verkfræðingur, tæknifræðingur eða annar sá aðili sem rétt hefur, samkvæmt byggingareglugerð, til að hanna og teikna hitakerfi." Sömuleiðis er pípulagningameistari skilgreindur með þessum hætti. "Löggiltur pípulagningameistari sem vinnur við hitakerfi sem tengist hitaveitunni, nefnist hér pípulagningameistari. Löggiltir pípulagningameistarar eru einu aðilarnir sem mega vinna við uppsetningu og viðhald hitakerfa." Þrátt fyrir framangreint verður að hafa í huga að ákveðin skörun getur verið á milli iðngreina auk þess sem iðnaðarlög gera ráð fyrir ákveðnum frávikum í dreifðum byggðum. Í lögum um mannvirki nr. 160/2010 er á því byggt að einkaréttur iðngreina sé bundin við þau verk sem eru byggingarleyfisskyld.
Mikilvægt er að hitakerfi í nýbyggingum séu hönnuð að þar til bærum aðilum og sama á auðvita við um meiriháttar breytingar á eldri kerfum eða þegar þau endurnýjuðu.
Auglýsing í stjórnartíðindum um tæknilega tengiskilmála hitaveitna nr. 855/2010.
Sem dæmi um þau atriði sem koma fram í tæknilegum tengiskilmálum hitaveitna má nefna kafla 4.3. svohljóðandi:
4.3 Hitakerfi
4.3.1 Hitakerfi er eign eiganda svo lengi að ekki gildi sérsamningur á milli hitaveitunnar og eiganda um annað. Hitakerfi getur samanstaðið af stjórngrind og t.d. ofnakerfi ásamt neysluvatnskerfi sbr. gr. 1.11. Stjórngrindina skal staðsetja við tengigrind hitaveitunnar.
4.3.2 Hönnuður velur stjórnbúnað fyrir hitakerfi. Stjórnbúnaður hita- og neysluvatnskerfa er utan ábyrgðarsviðs hitaveitunnar. Stjórnbúnaðurinn skal tryggja að forsendur fyrir umsókn um stærð heimæðar verði uppfylltar. Hitaveitan gerir að jafnaði ekki kröfur til hitakerfa umfram það sem tekið er fram í byggingarreglugerð og að þau geti ekki valdið truflunum í veitukerfinu svo sem marktækum þrýstihöggum, hávaða eða millirennsli.
4.3.3 Hönnuðir skulu kynna sér staðbundin rekstrarskilyrði hitaveitunnar og miða hönnun hita-kerfa og efnisval við þau. Vatnshiti, þrýstingur og efnasamsetning vatns eru staðbundin rekstrarskilyrði hitaveitna.
4.3.4 Ekki er heimilt að tengja þrýstiaukadælu við stjórngrind eiganda nema með skriflegu leyfi hitaveitunnar.
4.3.5 Hitaveitan tekur ekki á sig með þessum skilmálum, neina ábyrgð á hitakerfum.

BAKVAKT