Aðgangur viðskiptavina Norðurorku að neysluvatni er ágætur og vatnið sömuleiðis að mjög góðum gæðum. Helstu vatnsverndarsvæðin eru í Hlíðarfjalli, Glerárdal og Vöglum í Hörgársveit en þessi svæði þjóna Akureyri og hluta Hörgársveitar. Þá eru virkjuð ból í Garðsvík og Vaðlaheiði fyrir vatnsveitu í Svalbarðsstarndarhreppi. Norðurorka rekur einnig vatnveitu í Hrísey og í hluta af Eyjafjarðarsveit. Mikilvægt er að vel sé gengið um vatnsverndarsvæði og þar með talið að hlýta boðum og bönnum um umferð o.s.frv.
Heilbrigðiseftirlit Norðurlands eystra hefur eftirlit með neysluvatni á Akureyri og sömuleiðis er vinnsla og dreifing vöktuð í samræmi við vottað gæðakerfi Norðurorku.
Harka vatnsins er 0,93 til 1,55 dH og lítið er af uppleystum steinefnum í vatninu.
Svör við nokkrum algengum spurningum. Hvað getur verið að ef:
1. Vatnið er heitt í köldum krönum?
a. Líklega er millirennsli í húskerfinu, eða jafnvel í nálægum húsum.
b. Heitar og kaldar vatnslagnir liggja saman illa einangraðar.
2. Högg eða smellir eru í vatnslögnum?
a. Oft heyrist í einstreymislokum og getur það verið eðlilegt.
b. Bilun gæti verið í lögnum eða vél/tæki í gangi sem notar vatn og lokar snöggt fyrir.
3. Óhreinindi eru í vatni?
a. Gæti verið millirennsli, athuga hitastýrð blöndunartæki.
b. Kaldavatnslagnir í húskerfinu gætu verið farnar að tærast.
c. Óhreinindi gætu komið úr dreifikerfi vatnsveitu eftir framkvæmdir.
4. Vont bragð er af vatninu?
a. Nýjar lagnir eða nýviðgerðar, snittolía.
b. Gæti verið millirennsli, athuga hitastýrð blöndunartæki.
c. Hugsanlega úr dreifikerfinu eftir framkvæmdir.
5. Húsið er vatnslaust eða þrýstingur lágur?
a. Verið er að vinna í götunni.
b. Lokað hefur verið fyrir inntak.
c. Frosið er í vatnslögnum eða stífla í innanhússlögnum.
d. Leki er í heimæðinni eða hún í sundur.
6. Suð er í vatnslögnum?
a. Sírennsli einhvers staðar í húskerfinu. Ef lokað er fyrir inntakslokann á suðið að hætta, ef ekki þá gæti verið leki í heimæð.
b. Athugið blöndunartæki og vatnskassa á salernum.
Bilanir utanhúss á að tilkynna strax til Norðurorku sem og bilanir á inntakskrana. Bilanir innanhúss að stofnloka (inntakskrana) eru á verksviði pípulagningameistara.
Ef spurningar vakna vinsamlega hafið samband við þjónustuver okkar í síma 4601300 á skrifstofutíma frá kl. 8.00 til 16.00.
Munum að gott vatn er auðlind sem ganga þarf vel og skynsamlega um. Gætum þess að nota vatn ekki að óþörfu og gerum strax við leka.
Aðgangur viðskiptavina Norðurorku að neysluvatni er ágætur og vatnið sömuleiðis að mjög góðum gæðum. Helstu vatnsverndarsvæðin eru í Hlíðarfjalli, Glerárdal og Vöglum í Hörgársveit en þessi svæði þjóna Akureyri og hluta Hörgársveitar. Þá eru virkjuð ból í Garðsvík og Vaðlaheiði fyrir vatnsveitu í Svalbarðsstarndarhreppi. Norðurorka rekur einnig vatnveitu í Hrísey og í hluta af Eyjafjarðarsveit. Mikilvægt er að vel sé gengið um vatnsverndarsvæði og þar með talið að hlýta boðum og bönnum um umferð o.s.frv.
Heilbrigðiseftirlit Norðurlands eystra hefur eftirlit með neysluvatni á Akureyri og sömuleiðis er vinnsla og dreifing vöktuð í samræmi við vottað gæðakerfi Norðurorku.
Harka vatnsins er 0,93 til 1,55 dH og lítið er af uppleystum steinefnum í vatninu.
Svör við nokkrum algengum spurningum. Hvað getur verið að ef:
1. Vatnið er heitt í köldum krönum?
a. Líklega er millirennsli í húskerfinu, eða jafnvel í nálægum húsum.
b. Heitar og kaldar vatnslagnir liggja saman illa einangraðar.
2. Högg eða smellir eru í vatnslögnum?
a. Oft heyrist í einstreymislokum og getur það verið eðlilegt.
b. Bilun gæti verið í lögnum eða vél/tæki í gangi sem notar vatn og lokar snöggt fyrir.
3. Óhreinindi eru í vatni?
a. Gæti verið millirennsli, athuga hitastýrð blöndunartæki.
b. Kaldavatnslagnir í húskerfinu gætu verið farnar að tærast.
c. Óhreinindi gætu komið úr dreifikerfi vatnsveitu eftir framkvæmdir.
4. Vont bragð er af vatninu?
a. Nýjar lagnir eða nýviðgerðar, snittolía.
b. Gæti verið millirennsli, athuga hitastýrð blöndunartæki.
c. Hugsanlega úr dreifikerfinu eftir framkvæmdir.
5. Húsið er vatnslaust eða þrýstingur lágur?
a. Verið er að vinna í götunni.
b. Lokað hefur verið fyrir inntak.
c. Frosið er í vatnslögnum eða stífla í innanhússlögnum.
d. Leki er í heimæðinni eða hún í sundur.
6. Suð er í vatnslögnum?
a. Líklega er sírennsli einhvers staðar í húskerfinu. Ef lokað er fyrir inntakslokann á suðið að hætta, ef ekki þá gæti verið leki í heimæð.

BAKVAKT