Rafmagn

Norðurorka rekur rafveitu á Akureyri og hefur gert síðan 1929.  Með lögum frá árinu 2003 var ákveðið að gera breytingar sem eiga að hafa það markmið að

Rafmagn

Norðurorka rekur rafveitu á Akureyri og hefur gert síðan 1929.  Með lögum frá árinu 2003 var ákveðið að gera breytingar sem eiga að hafa það markmið að koma á samkeppnismarkaði í framleiðslu og sölu á raforku.  Þetta felur í sér að skilið er á milli þriggja megin þátta, (1) raforkuframleiðslu og sölu, (2) flutnings og loks (3) dreifingar.  Í þessu fellst að raforkuframleiðsla og sala á að vera í höndum sjálfstæðra fyrirtækja sem keppa á samkeppnismarkaði. Hins vegar var ákveðið að stofna sérstakt fyrirtæki, Landsnet sem sér um flutning raforkunnar frá framleiðendum til stórnotenda og dreifiveitna í sveitarfélögunum.  Í sveitarfélögunum og sveitum landsins taka síðan dreifiveiturnar við og sjá um að koma rafmagninu til viðskiptavina, íbúðarhúsnæðis og fyrirtækja.

Norðurorka uppfyllti framangreindar lagakröfur með því að skilja á milli dreifingar og framleiðslu og sölu.  Í dag sér Norðurorka um dreifinguna og hefur til þess sérleyfi á Akureyri en Fallorka dótturfyrirtæki Norðurorku sér um framleiðslu og smásölu á raforku og er fyrirtækið með viðskipti um allt land.  Mest af raforkunni sem Fallorka selur kaupir hún í heildsölu af framleiðendum og þar er Landsvirkjun langstærsti seljandinn.

Svæði

RANGÁRVELLIR, 603 AKUREYRI
KT: 550978-0169
SÍMI 460 1300 - FAX 460 1301
NO@NO.IS
OPNUNARTÍMI ÞJÓNUSTUVERS: kL. 8 - 16

BAKVAKT

Símar bakvakta utan skrifstofutíma

HITAVEITA: 892 7305
VATNSVEITA: 892 7305
RAFVEITA: 892 1514
ÓLAFSFJÖRÐUR: 893 1814

Rauntölur Norðurorku

Útihiti Akureyri   14,4 °C Vatnsvinnsla 198,2 l/s
Dæling og hitastig frá Laugalandi 21,4 l/s   86,8 °C
Dæling og hitastig frá Hjalteyri 94,4 l/s   86,9 °C
Rafmagnsnotkun Akureyri 10,1 MW