Í ýmsum tilvikum kann að vera nauðsynlegt að koma fyrir heimlögn í húsnæði eða á vinnusvæði tímabundið. Þetta er algengt t.d. í vinnuskúra, tímabundnar sölubúðir og fleira.
Norðurorka áskilur sér rétt til þess að gera kröfu um að utan á húsnæði sem er að staðaldri er notað sem færanlegt húsnæði, s.s. vinnuskúrar, sölubúðir og þess háttar sé komið fyrir tengikassa fyrir inntök rafmagns og vatns og þar með talið nauðsynlegum mælibúnaði.
Lengdargjald er greitt fyrir hvern metra í heimlögn bráðabirgðatengingar. Ef bráðabirgðaheimlögn er síðar notuð sem aðalheimlögn greiðist ekkert lengdargjald.
Bráðabirgðarheimlagnir skulu ætíð aflagðar innan 24 mánaða frá tengingu þeirra.
Verðskrá bráðabirgðaheimlagna.


BAKVAKT