Af fasteignum fyrirtækja er greitt vatnsgjald með sama hætti og öðrum eignum vegna svo nefndra heimilisþarfa, þ.e. gjald miðað við m² og svonefnt fastgjald á matseiningu. Hins vegar er einnig heimilt að ákveða að fyrirtæki og aðrir stórnotendur greiði gjald samkvæmt mæli. Aukavatnsgjald skal að jafnaði innheimta samkvæmt mæli sem Norðurorka leggur til og er gjald fyrir mæli innifalið í fastagjaldi fyrir matseiningu. Mælar eru settir upp þar sem áætla má að vatnsnotkun sé mikil. Auk þessa er ákvæði í reglugerð um vatnsveitur sveitarfélaga nr. 401/2005 sem heimilar innheimtu samkvæmt áætlun ef ekki er hægt að koma við mælingu.
Verðskrá frá 1. janúar 2012
Rúmmálsgjald 19,56 kr/m³. Fyrstu 100.000 m³.
Rúmmálsgjald 17,95 kr/m³. Eftir fyrstu 100.000 m³ til 250.000 m³.
Rúmmálsgjald 14,68 kr/m³. Eftir fyrstu 250.000 m³.
Miðað er við ársnotkun.

BAKVAKT