Fróðleiksmolar

Auðlindir Ísland er ríkt af auðlindum. Við eigum margt dýrmætt sem við þurfum að fara vel með og hafa ætíð framtíðina í huga. Helstu auðlindir á Íslandi

Fróðleiksmolar

Auðlindir

Ísland er ríkt af auðlindum. Við eigum margt dýrmætt sem við þurfum að fara vel með og hafa ætíð framtíðina í huga. Helstu auðlindir á Íslandi eru auðug fiskimið, hreint vatn, jarðefni, falleg náttúra og orkulindir. Höfuðorkulind okkar Íslendinga er vatnið, bæði kalt og heitt.

Vatn er nauðsynlegt öllum lífverum og við Íslendingar erum svo lánsamir að eiga gnægð af hreinu og góðu vatni. Ekki eru allar þjóðir svo heppnar. Hér á Íslandi er vatnið leitt í vatnsleiðslum heim til fólksins sem þarf ekki annað en skrúfa frá krana til að fá þennan holla og góða drykk. Við notum mikið vatn til drykkjar, matargerðarðar, þvotta, rafmagnsframleiðslu, upphitunar og fiskiðnaðurinn notar mjög mikið vatnsmagn.
Hreint og gott neysluvatn nálægt byggð er auðlind sem verður að vernda svo að ekki þurfi að grípa til vatnshreinsunar.

Við Íslendingar erum einnig mjög lánsöm þjóð að eiga heita vatnið. Við notum það víða til að hita upp hús í stað þess að kynda með rafmagni eða olíu og erum því laus við óþrif og mengun sem olíukyndingu fylgja. Við notum heita vatnið til margs annars en upphitunar, t.d. gerir það okkur kleift að rækta margs konar grænmeti og blóm í gróðurhúsum, við notum það í sundlaugar og fleira mætti nefna.
Heita vatnið er dýrmæt orkulind sem ekki er ótæmandi og því full ástæða til að fara sparlega með það. Ef við ofnýtum jarðhitann getur það valdið skorti á heitu vatni fyrr eða síðar. Nýtum því heita vatnið skynsamlega.

 

Svæði

RANGÁRVELLIR, 603 AKUREYRI
KT: 550978-0169
SÍMI 460 1300 - FAX 460 1301
NO@NO.IS
OPNUNARTÍMI ÞJÓNUSTUVERS: kL. 8 - 16

BAKVAKT

Símar bakvakta utan skrifstofutíma

HITAVEITA: 892 7305
VATNSVEITA: 892 7305
RAFVEITA: 892 1514
ÓLAFSFJÖRÐUR: 893 1814

Rauntölur Norðurorku

Útihiti Akureyri   15,1 °C Vatnsvinnsla 204,5 l/s
Dæling og hitastig frá Laugalandi 23,9 l/s   86,9 °C
Dæling og hitastig frá Hjalteyri 97,3 l/s   86,9 °C
Rafmagnsnotkun Akureyri 10,1 MW