4. sep 2014

Búið er að hleypa heitu vatni á

Vinna við að fjarlægja brunna í Álfabyggð hefur gengið samkvæmt áætlun og búið er að hleypa vatni á kerfið (skrifað kl. 20:00).

Nokkurn tíma getur tekið að ná upp fullum þrýstingi í dreifikerfið. Nokkuð stórt svæði er á áhrifasvæði þeirra brunna sem verið var að fjarlægja og ljóst að fullur þrýstingur kemur mishratt inn eftir götum. Viðskiptavinum er bent á að huga að hitakerfum sínum, dælum á gólfhitalögnum, varmaskiptum og öðrum slíkum búnaði. Jafnframt er mjög gott að lofttæma ofnakerfi eftir að vatnið er komið á. Hafi viðskiptavinir ekki þekkingu á búnaði sínum er nauðsynlegt að hafa samband við pípulagningameistara til þess að huga að kerfinu og búnaði þess.

Komi upp einhver vandamál þá er viðskiptavinum bent á að hafa samband við þjónustuver Norðurorku í síma 460-1300 á skrifstofutíma (8:00-16:00) en bakvakt Norðurorku í síma 892- 7305 utan þess tíma.