11. ágú 2014

Framkvæmdir við Gilsbakkaveg

Vegna vinnu við brunn í Gilsbakkavegi er nauðsynlegt að loka götunni við hús númer 11, dagana 11. til og með 15. ágúst.

Þetta þýðir að íbúar í Gilsbakkavegi 11 og öllum húsum austan við það hús þurfa að keyra Oddagötu til að komast að og frá húsum sínum á bifreiðum.  Sett verður tvístefna á Gilsbakkaveg austan Frímúrarahússins á meðan á þessum framkvæmdum stendur og bílastæðum sunnanmegin í Gilsbakkavegi lokað.

Gangandi og hjólandi vegfarendum verður fært um götuna þrátt fyrir framkvæmdirnar.  Þá er mögulegt að hægt verði að leyfa umferð um Gilsbakkaveg síðdegis og á kvöldin meðan vinnuvélar eru ekki að störfum en það kemur ekki í ljós fyrr en að framkvæmdunum sjálfum kemur.

Íbúar og gestir þeirra eru beðnir velvirðingar á óþægindunum.

Starfsfólk Norðurorku hf.