Fyrsta holan á Þeistareykjum í þrjú ár.

Fyrsta holan á Þeistareykjum í þrjú ár. Landsvirkjun vinnur nú að frekari rannsóknum á háhitasvæðinu á Þeistareykjum og nýlega luku Jarðboranir við 2500

Fyrsta holan á Þeistareykjum í þrjú ár.

Borun ÞG-08, Lambafjöll í baksýn
Borun ÞG-08, Lambafjöll í baksýn

Landsvirkjun vinnur nú að frekari rannsóknum á háhitasvæðinu á Þeistareykjum og nýlega luku Jarðboranir við 2500 metra djúpa holu sem var stefnuboruð undir Ketilfjall en þar er megin hitauppstreymi svæðisins talið vera.  Verkið tafðist nokkuð í upphafi vegan óvenju hás hita og þrýstings en eftir það gekk verkið mjög vel.  Unnið er að lokafrágangi á holunni og gert ráð fyrir því að hún verði afkastamæld í nóvember.

Þetta er fyrri holan af tveimur sem bora á á þessu ári en hin holan verður boruð í jaðri vesturhluta Þeistareykja og gert ráð fyrir að borun hennar ljúki í nóvember.

Myndin með fréttinni er fengin af vef Þeistareykja ehf.  www.theistareykir.is


Svæði

RANGÁRVELLIR, 603 AKUREYRI
KT: 550978-0169
SÍMI 460 1300 - FAX 460 1301
NO@NO.IS
OPNUNARTÍMI ÞJÓNUSTUVERS: kL. 8 - 16

BAKVAKT

Símar bakvakta utan skrifstofutíma

HITAVEITA: 892 7305
VATNSVEITA: 892 7305
RAFVEITA: 892 1514
ÓLAFSFJÖRÐUR: 893 1814

Rauntölur Norðurorku

Útihiti Akureyri   13,6 °C Vatnsvinnsla 203,0 l/s
Dæling og hitastig frá Laugalandi 23,5 l/s   86,6 °C
Dæling og hitastig frá Hjalteyri 96,5 l/s   86,9 °C
Rafmagnsnotkun Akureyri 10,1 MW