17. jan 2017

Jarðvegsframkvæmdir, sprengingar við Sandgerðisbót

Framkvæmdir við hreinsistöð fráveitu eru hafnar og þáttur í þeim eru jarðvegsframkvæmdir á svæðinu, þ.e. í Sandgerðisbót. Meðal þess sem þarf að gera er að sprengja klöpp fyrir dælukjallara og sveifluþró. Sprengingarnar munu fara fram daglega út þessa viku. Þjónustuver Norðurorku hefur haft samband við húseigendur á svæðinu til að láta vita af framkvæmdinni.

Vegfarendur er beðnir að sýna ítrustu varkárni á svæðinu og fara ekki nærri vinnusvæðinu.

Jarðvegsframkvæmdir við Sandgerðisbót sprengingar vegna dælukjallara og sveifluþróar