16. apr 2015

Kalda vatnslaust á Svalbarðsströnd laugardaginn 18. apríl

Undanfarið hefur verið unnið að lagningu nýrrar stofnæðar í vatnsveitu Svalbarðsstrandar.  Laugardaginn 18. apríl næstkomandi verður stofnæðin tengd við dreifikerfið og því nauðsynlegt að loka fyrir kalda vatnið frá kl. 8:00 um morguninn og fram eftir degi. Lokunarsvæðið nær til nyrðri hluta vatnsveitunnar eins og nánar má sjá á myndinni hér fyrir neðan.

Smáskilaboð hafa verið send til þeirra viðskiptavina sem eru skráðir með farsíma hjá okkur.

Rétt er að taka fram að þessi framkvæmd er á engan hátt tengd þeim vandamálum sem hafa verið í rekstri vatnsveitunnar að undanförnu varðandi mengun vatnsbóla.

Hér á heimasíðunni má finna góð ráð þegar kemur til þjónusturofs.

Lokunarsvæði vatnsveitu 18. apríl 2015