3. nóv 2014

Sigurður J Sigurðsson fjármálastjóri lætur af störfum

Sigurður J Sigurðsson sviðsstjóri fjármála og þjónustu hefur látið af störfum hjá Norðurorku fyrir aldurs sakir.

Sigurður hóf störf hjá félaginu árið 2002 eða skömmu áður en félaginu var breytt í hlutafélag.  Félagið hefur eflst mikið á þessum tímabili og fjárhagur þess styrkst verulega.  Sigurður hefur tekið þátt í mikilli stækkun félagsins með því að fjölmargar veitur á Eyjafjarðarsvæðinu hafa sameinast Norðurorku auk þess sem nýjar veitur hafa orðið til og veitusvæði stækkað.

Norðurorka hf. kveður Sigurð með söknuði og miklu þakklæti fyrir afburða vel unnin störf.

Sigurður J Sigurðsson lætur af störfum fyrir aldurssakir