26. nóv 2014

Vegna vinnu við dreifikerfi rafveitu þarf að rjúfa straum í hluta Naustahverfis

Rafmagnsrof  fimmtudaginn 27. nóvember 2014.

Vegna vinnu við dreifikerfi verður lokað fyrir rafmagn fimmtudaginn 27. nóvember milli kl. 9:30 – 15:30 í hluta Naustahverfis, en áhrifasvæði lokunarinnar má sjá á myndinni hér fyrir neðan.  Alls eru um 300 húsveitur á áhrifasvæði rofsins.  Allir notendur sem eru með skráðan farsíma í tilkynningarkerfi Norðurorku (sjá á MÍNAR SÍÐUR) fá sent SMS tilkynningu um rofið.

Viðskiptavinir eru beðnir að kynna sér góð ráð komi til þjónusturofs sem finna má hér á heimasíðu Norðurorku  www.no.is

Rafmagnsrof í Naustahverfi 27. nóvember 2014