Heimlagnir

Norðurorka hf. rekur hitaveitu í átta sveitarfélögum við Eyjafjörð og í Þingeyjarsveit, vatnsveitu í fimm sveitarfélögum og rafveitu á Akureyri.  Mjög

Heimlagnir

Norðurorka hf. rekur hitaveitu í átta sveitarfélögum við Eyjafjörð og í Þingeyjarsveit, vatnsveitu í fimm sveitarfélögum og rafveitu á Akureyri.  Mjög mikilvægt er að vandað sé til undirbúnings tengingar við ofangreindar veitur hvort heldur verið er að tengja nýbyggingu við veituna eða þegar byggða fasteign.

Í heimlagnabæklingi Norðurorku eru teknar saman leiðbeiningar fyrir viðskiptavini um tengingu við veitukerfin og reglur sem gilda um þær.  Mikilvægt er að viðskiptavinir kynni sér þessar leiðbeiningar og fari eftir þeim reglum og skilmálum sem um tengingarnar gilda, jafnt þær sem hér koma fram, sem og reglur skipulags- og byggingarlaga og byggingarreglugerðar.  Sé eitthvað óljóst þá endilega hafið samband við okkur áður en í framkvæmdir er ráðist.

Einnig er lögð áhersla á að fasteignareigendur séu í sambandi við Norðurorku þegar farið er í framkvæmdir á lóð fasteignar.  Mikilvægt er að húseigandi kynni sér hvar lagnir eru áður en framkvæmdir byrja og láti okkur einnig vita um framkvæmdirnar þannig að við getum metið hvort ástæða sé til þess að endurnýja heimlagnir samhliða framkvæmdunum.  Þar ræður aldur lagna og ástand þeirra við skoðun á staðnum.

Heimlagnabæklinginn má nálgast hér.

Verðskrá heimlagna er hér að neðan. Sé sótt um heimlögn sem er stærri en getið er um í verðskrá þarf að snúa sér til Norðurorku með fyrirspurn um verð.

Norðurorka hf. verðskrá heimlagna 1. janúar 2013

Norðurorka hf. verðskrá heimlagna 1. janúar 2013

 

 

Svæði

RANGÁRVELLIR, 603 AKUREYRI
KT: 550978-0169
SÍMI 460 1300 - FAX 460 1301
NO@NO.IS
OPNUNARTÍMI ÞJÓNUSTUVERS: kL. 8 - 16

BAKVAKT

Símar bakvakta utan opnunartíma

HITAVEITA: 892 7305
VATNSVEITA: 892 7305
RAFVEITA: 892 1514
ÓLAFSFJÖRÐUR: 893 1814

Rauntölur Norðurorku

Útihiti Akureyri   6,2 °C Vatnsvinnsla 265,8 l/s
Dæling og hitastig frá Laugalandi 113,4 l/s   88,6 °C
Dæling og hitastig frá Hjalteyri 81,7 l/s   86,9 °C
Rafmagnsnotkun Akureyri 4,1 MW