24. mar 2015

Rafmagn fór af stórum hluta Akureyrar um tíma

Rafmagnslaust varð á Eyrinni, Miðbænum og hluta Brekkunnar á Akureyri um tíma laust fyrir klukkan fimm í dag (16:40).  Bilun varð í spennistöð á Eyrinni með þeim afleiðingum að útsláttur varð á stóru svæði.

Rafmagn er nú komið á allstaðar nema hjá Útgerðarfélagi Akureyrar þar sem umrædd spennistöð er.

Skrifað kl. 16:56