Meginhlutverk Norðurorku er að sinna orku- og vatnsþörf heimila og annarra viðskiptavina sinna en það gerir fyrirtækið með
- Vinnslu og nýtingu jarðhita, vatnsorku, vatns og hvers konar annarra auðlinda
- Dreifingu og sölu á orku og vatni
- Rekstri eða þátttöku í hverri annarri starfsemi sem nýtt getur rannsóknir, þekkingu eða búnað félagsins
Megin markmið
- Að Norðurorka viðhaldi styrk sínum og stöðu sem ein af stærstu alhliða orkuveitum landsins.
- Að veita góða,áreiðanlega og hagkvæma þjónustu.
- Að reksturinn skili góðri afkomu.
- Að hámarka nýtingu fjármuna.
- Að hafa á að skipa hæfu starfsfólki sem býr að góðu vinnuumhverfi.
- Að hafa skilvirkt og viðurkennt gæðakerfi.
- Að taka þátt í öðrum fyrirtækjum sem eflt geta starfsemi Norðurorku.
Auk þess hafa stjórnendur markað gæðastefnu sem hæfir tilgangi fyrirtækisins og myndar auk þess nauðsynlegan ramma um gæðastarfið svo unnt sé að skilgreina gæðamarkmið og rýna þau.
Gæðastefna Norðurorku er
- að viðskiptavinir fái góða vöru og þjónustu
- að leggja áherslu á stöðugar umbætur
- að viðhalda ISO 9001 vottun og uppfylla opinberar kröfur sem gerðar eru til starfseminnar.
- að búa vel að starfsmönnum
- að hafa á að skipa hæfu starfsfólki
- að stuðla að jákvæðri ímynd fyrirtækisins
- að taka tillit til umhverfissjónarmiða í starfseminni

BAKVAKT