Ert þú að fara að grafa ?

Við viljum vera í góðu sambandi við þau sem standa í framkvæmdum. 

Ein aðal orsök bilana í dreifikerfi okkar er sú að verktakar eða aðrir grafa í sundur vatnslagnir eða rafmagnsstrengi. Þess vegna minnum við á mikilvægi þess að leita upplýsinga um legu lagna hjá okkur áður en framkvæmdir hefjast til að hægt sé að koma í veg fyrir tjón og óþægindi fyrir viðskiptavini. 

Áður en framkvæmdin hefst er rétt að skoða eftirfarandi:

Ertu búin(n) að kynna þér legu lagna á svæðinu? 

Mikilvægt er að afla upplýsinga um legu veitulagna áður en jarðvegsframkvæmdir hefjast. 
Í kortasjá Norðurorku má finna grunnupplýsingar um lagnir en athugið að um grunnupplýsingar er að ræða. Starfsfólk okkar veitir ítarlegri upplýsingar um nákvæma staðsetningu lagna, dýpi þeirra, aldur og gerð. 

Hægt er að hafa samband í síma 460-1300 eða senda póst á no@no.is til að óska eftir hnitsettum teikningum. Einnig má heimsækja okkur á Rangárvelli og nálgast teikningar. Teikningar af legu veitulagna eru oftast afgreiddar á meðan beðið er.

Er kominn tími á endurnýjun heimlagna?

Þegar unnið er að viðhaldi hvetjum við húseigendur til að láta okkur vita um framkvæmdirnar þannig að við getum metið hvort ástæða sé til þess að endurnýja heimlagnir samhliða framkvæmdunum.  Þar ræður aldur lagna og ástand þeirra við skoðun á staðnum.

Þarf mögulega að færa veitulagnir í tengslum við framkvæmdina?

Ef framkvæmdaraðili telur að breyta þurfi legu veitulagna vegna framkvæmda sinna, skal hann áður en vinna hefst hafa samband við Norðurorku og óska eftir færslu. Ef fallist er á að breyta legu lagnarinnar, þá lætur Norðurorka framkvæma verkið eftir að samið hefur verið um hver skuli bera kostnaðinn eða hvernig hann skiptist. Meginreglan er að sá sem biður um breytingu greiði kostnaðinn.