Sjálfvirkur álestur

Með tilkomu nýrra snjallmæla í bæði hitaveitu og rafveitu, er mögulegt að safna inn sjálfkrafa tölum um notkun inn í kerfi Norðurorku. Unnið verður að því á árinu 2026 að upplýsingum um notkun á heitu vatni og rafmagni verði safnað með þessum hætti, hjá þeim notendum sem hafa fengið setta upp nýja snjallmæla sem geta skilað slíkum upplýsingum inn.

Í þessu felst að ekki þarf lengur að lesa af mælum einu sinni á ári. Notendur, sem hafa slíka mæla, þurfa því ekki lengur að skila inn álestrum í gegnum Mínar síður og starfsfólk Norðurorku þarf ekki að fara í heimsóknir til að sinna álestri. Það skal tekið fram að þetta er almenna reglan, en áfram verða einhverjir notendur með eldri týpur mæla sem krefjast árlegs uppgjörs. Stefnan er sú að innan fárra missera verði allir notendur hjá Norðurorku komnir með sjálfvirka mæla.

Mánaðarlegt uppgjör

Með tilkomu sjálfvirks álesturs verða reikningar nákvæmari og notendur greiða fyrir raunnotkun mánuðinn á undan, en ekki samkvæmt áætlun eins og verið hefur. Ekki ætti því að koma til þess að notendur greiði of mikið eða of lítið fyrir sína notkun.

Þetta þýðir einnig að notendur greiða hærri gjöld þá mánuði þar sem notkunin er meiri, til dæmis fyrir heitt vatn yfir vetrarmánuði, og lægri gjöld fyrir þá mánuði þar sem notkunin er minni. Áður hafa reikningar verið nokkurn veginn þeir sömu á milli mánaða, vegna áætlunar. Þetta er gott að hafa í huga yfir veturinn.

Þó notendur séu nú þegar komnir með sjálfvirka mæla, verður fyrirkomulagið á breytingunni þannig að lokið verður við næsta ársuppgjör hjá hverjum notanda áður en mánaðarlegt uppgjör hefst. Það einfaldar alla reikningagerð og umstang fyrir bæði notendur og Norðurorku.