Hér að neðan má sjá ýmis eyðublöð Norðurorku, ýmist rafræn eða í PDF formi.
Heimlögn - Umsókn
Áður en sótt er um heimlögn er mikilvægt að kynna sér Upplýsingarit heimlagna þar sem teknar eru saman helstu leiðbeiningar fyrir viðskiptavini um tengingu við veitukerfin og reglur sem gilda um þær.
Hægt er að fylla umsóknareyðublaðið út rafrænt og prenta. Undirritað blað má skanna inn og senda til Þjónustuvers á no@no.is eða með pósti á Norðurorka hf., Rangárvöllum, 603 Akureyri.
ATH: Ef notaður er annar vafri en Internet explorer getur verið nauðsynlegt að hlaða eyðublaðinu sérstaklega niður.
Notendaskipti - flutningstilkynning
Nánari upplýsingar um mælaálestur og notendaskipti má finna undir Ertu að flytja?
Þjónustubeiðni fyrir hitaveitu - vatnsveitu
Hægt er að fylla blaðið út rafrænt og prenta. Undirritað blað má skanna inn og senda til Þjónustuvers á no@no.is eða með pósti á Norðurorka hf., Rangárvöllum, 603 Akureyri.
Athugið að ef notaður er annar vafri en Internet explorer getur verið nauðsynlegt að hlaða eyðublaðinu sérstaklega niður.
Fylgstu með notkuninni - eyðublað til útprentunar
Hér má nálgast eyðublað til útprentunar fyrir þau sem vilja fylgjast með notkuninni og skrá hjá sér stöðu mæla mánaðarlega.
Tilkynning um tjón
Varðst þú fyrir tjóni? Vinsamlegast fylltu út meðfylgjandi eyðublað og málið er þar með komið í ferli.