24. jún 2026

46 tonn af rusli hreinsað úr fráveitu árið 2025

Hreinsistöð fráveitu var tekin í notkun árið 2020 en þar eru allir fastir hlutir sem er eru stærri en 3 millimetrar hreinsaðir úr fráveituvatninu. Þessu fasta efni er síðan pakkað og það urðað. Í fráveitukerfinu eru lagnir, dælustöðvar og fjöldi dæla sem koma fráveituvatninu alla leið í hreinsistöðina. Eftir því sem fasta efnið er fyrirferðarmeira í fráveitunni, verður erfiðara í dæla því áfram og hreinsa það frá. Efnið festist í lögnum og dælum, sem kallar á kostnaðarsamar viðgerðir og viðhald.

Fitukekkir hlaða sífellt meiru utan á sig eftir því sem þeir ferðast um kerfið en allra erfiðast er að eiga við blautþurrkur og klúta, sem eiga alls ekki að fara í klósettið heldur beint í ruslið. Blautþurrkur eru ekki hannaðar til þess að brotna auðveldlega niður, en á sumum umbúðum kemur þó fram að þær séu „flushable." Slíkt þýðir í raun að það sé hægt að sturta þeim niður, en ekki að þær megi fara í fráveitukerfið. Með öðrum orðum - það er vissulega hægt að setja þær í klósettið og þær skila sér út úr húsinu, en þessi merking segir ekkert til um að þær eigi að fara í fráveituna. 

Blautþurrkur safna á sig fitu og öðrum úrgangi í fráveitukerfinu, stífla dælur og valda almennt miklu tjóni. Í fráveitu sem ekki er hreinsuð á leið til sjávar, líkt og gert var áður en hreinsistöðin var tekin í notkun, fara þessar blautþurrkur út í lífríkið líkt og annað plastrusl og brotna mjög lítið niður á mjög löngu tímabili.

Í klósettið á ekkert að fara nema piss, kúkur og klósettpappír.

Hér að neðan má sjá myndband frá hreinsistöðinni þar sem sýnt á er fráveitusigtin og farið yfir hvernig blautþurrkur og annað rusl er hreinsað frá.