12. maí 2021

Áframhaldandi breyting á uppgjörstímabili

Norðurorka er sífellt að leita að tækifærum til að bæta þjónustu. Þessa dagana er unnið að því að dreifa árlegu uppgjöri innan ársins eftir svæðum. Þetta er gert til þess að draga úr álagspunktum sem annars voru að myndast á haustin og hafa áhrif á þjónustustig annarra þátta.

Norðurorka gefur út áætlunarreikninga 11 mánuði ársins og uppgjörsreikning 12. mánuðinn. Það er rétt að ítreka að það verður óbreytt áfram. Breytingin snýr aðeins að því hvenær ársins uppgjörið fer fram. Sjá meira um uppgjör og álestur hér.

Nú verða tekin fyrir fjögur af þrettán svæðum innan Akureyrar. Þar mun framvegis vera lesið af í maí og uppgjörsreikningar sendir mánaðarmótin maí/júní ár hvert.

Við viljum því biðla til þeirra sem fá sms eða tölvupóst frá okkur um þessa breytingu að skila inn árlegum álestri á mínum síðum.

Hér má sjá leiðbeiningar (PDF) um innskráningu á „Mínar síður“

  Mínar síður  

Vakni einhverjar spurningar varðandi þetta eða reikninga þá endilega hafið samband með því að senda tölvupóst á no@no.is eða með því að hringja í þjónustuver Norðurorku í síma 460-1300.