Líkt og víða hefur bilun hjá Microsoft áhrif á starfsemi Norðurorku. Vakin er athygli á því að ekki er öruggt að allir tölvupóstar berist fyrirtækinu á meðan unnið er að viðgerð. Þeir viðskiptavinir sem hafa sent tölvupóst til þjónustuvers eða á aðra starfsmenn, skulu ekki gera ráð fyrir því að tölvupósturinn skili sér alla leið.
Öllum póstum, sem komast til skila, verður svarað um leið og hægt er