Ársfundur Norðurorku hf. verður haldinn í Menningarhúsinu Hofi, mánudaginn 20. apríl kl. 15:00.
Á fundinum verður boðið uppá fróðleg erindi úr ýmsum áttum. Fjallað verður um áfallaþol ómissandi innviða í breyttri heimsmynd, lagaumgjörð orku- og veitugeirans og kastljósinu beint að sérleyfisfélögum, mikilvægi þeirra og tækifærum framundan. Einnig verður litið meira inn á við þegar rannsóknaráætlun hitaveitu Norðurorku verður kynnt, staða vatnsöflunar og fleira áhugavert úr starfseminni.
Verið öll velkomin.
Um takmarkað sætaframboð er að ræða og því hvetjum við þau sem hyggjast mæta á fundinn til að skrá sig sem fyrst, í síðasta lagi 12. apríl 2026.
Opnunartími Norðurorku
Opið virka daga kl. 8-12 og 13-15