23. okt 2017

Auglýst eftir umsóknum um styrk til samfélagsverkefna

Nú hefur verið auglýst eftir umsóknum um styrki vegna ársins 2018.  Umsóknarfrestur er til og með 17. nóvember 2017 og er gert ráð fyrir að styrkjum verði úthlutað fyrir miðjan janúar 2018.  
Styrkir eru fyrst og fremst veittir til starfsemi á starfssvæði Norðurorku hf. en einnig hafa verið veittir styrkir til verkefna sem taka til landsins alls.

Umsóknareyðublað skal fylla út og senda:

(1) Með pósti á Norðurorka hf., Rangárvöllum, 603 Akureyri eða
(2) sem fylgiskjal með tölvupósti á netfangið no@no.is

Fylgiskjöl með umsókninni má senda hvort heldur sem er í tölvutæku formi með tölvupóstinum eða með póstlagðri umsókn.

Öllum umsóknum verður svarað.