Þrír rafvirkjar Norðurorku, þau Agnar Sigurðarson, Fjóla Sigrún Árnadóttir og Róar Björn Ottemo stunda nú nám í rafveituvirkjun við Fjölbrautarskóla Norðurlands vestra, sem veitir þeim réttindi til að vinna við háspennukerfi. Námið er kennt í fjarnámi og hentar vel samhliða vinnu. Um er að ræða sérhæfingu ofan á hefðbundið rafvirkjanám, og veitir það aukna faglega færni og víðtækari réttindi.
Þekking sem nýtist í starfi
Fjóla hefur starfað hjá Norðurorku í um eitt og hálft ár og er líkt og Agnar og Róar hálfnuð í náminu. Hún segir námið gagnast sér vel í daglegum störfum: „Ég skráði mig í rafveituvirkjun til að öðlast meiri þekkingu sem ég get nýtt mér í starfi. Þetta er fyrsta skiptið í langan tíma sem námið er kennt fyrir norðan og það sem helgarnám, sem er mjög hentugt fyrir vinnandi fólk.“
Nám tengt raunverulegri vinnu
Róar hefur starfað hjá Norðurorku í níu ár og segir námið tengjast beint því sem hann vinnur við daglega: „Þetta tengist því sem við fáumst við daglega – námið veitir aukna þekkingu og skilning á veitugeiranum. Ég mæli með þessu fyrir rafvirkja innan veitugeirans.“
Réttindi til að vinna við háspennu
Agnari langaði í rafveituvirkjun áður en hann lauk sveinsprófi í rafvirkjun. Þegar hann frétti að Fjóla og Róar væru búin að skrá sig í námið ákvað hann að slá einnig til. Hann segir námið opna nýjar dyr: „Þú færð réttindi til að vinna við háspennu. Náminu fylgir einnig annað sveinspróf og þar með aukin réttindi. Námið er fjarnám og verkefnum er skilað á netinu – þannig að það hentar mjög vel með vinnu.“
Starf rafveituvirkja felst að mestu í háspennutækni, s.s. uppsetningu tengivirkja, spennistöðva og lagningu háspennulína. Námið krefst góðrar öryggisvitundar og þekkingar á burðarþoli, enda fer vinnan oft fram við krefjandi aðstæður.
Norðurorka leggur áherslu á fagmennsku og símenntun
Með þátttöku starfsmanna í rafveituvirkjun styrkist fagþekking innan fyrirtækisins enn frekar – sem tryggir öryggi og gæði í þeim mikilvægu verkefnum sem Norðurorka sinnir daglega.
Opnunartími Norðurorku
Opið virka daga kl. 8-12 og 13-15