12. okt 2018

Bilun á háspennustreng olli rafmagnsleysi í hluta þorpsins í nótt

Bilun á háspennustreng á milli dreifistöðva olli rafmagnsleysi í hluta þorpsins á Akureyri í nótt.
Rafmagnið fór af kl. 04:19 en var komið aftur á kl. 05:45.

Rafmagni var komið á eftir öðrum leiðum en nú verður farið í að staðsetja bilunina og gera við.

Á myndinni hér að neðan má sjá það svæði sem varð rafmagnslaust afmarkað með rauðri línu.