27. sep 2017

Bilun í metanstöð

Gashreinsistöðin við Súluveg
Gashreinsistöðin við Súluveg

Vegna bilunar í hreinsistöð fyrir metan er ekki unnt að afgreiða metan frá afgreiðslustöð.
Búið er að greina bilunina og er nú beðið eftir varahlutum frá Svíþjóð.
Það er því ljóst að ekki verður hægt að opna afgreiðsluna fyrr en eftir nokkra daga en nánari upplýsingar verða settar hér inn þegar þær liggja fyrir.

Viðskiptavinir eru beðnir afsökunar á þeim óþægindum sem bilunin kann að valda.