5. mar 2018

Bilun á háspennustreng olli rafmagnsleysi

Bilun á háspennustreng milli dreifistöðvar 003 (Hafnarstræti 53) og dreifistöðvar 002 (neðst á Spítalavegi) orsakaði rafmagnsleysi á nokkuð stóru svæði milli kl. 17.30 og 18.00 í dag. Hægt var að koma rafmagni aftur á eftir öðrum leiðum um klukkan 18.00 og ættu því allir að vera komnir með rafmagn.

Hér að neðan má sjá svæðið sem fór út við bilunina.