5. okt 2016

Borun lokið við Hrafnagil

Jarðhitasvæðin í Eyjafjarðarsveit voru grunnurinn að stofnun Hitaveitu Akureyrar árið 1977 og þaðan kom stærsti hluti hitaveituvatnsins alveg fram á þessa öld. Á ýmsu hefur gengið við jarðhitavinnslu í Eyjafirði gegnum árin og margar holur verið boraðar sem litlum eða engum árangri hafa skilað, en sem betur fer einnig gjöfular og góðar borholur.  Í upphafi hitaveitunnar ríkti mikil bjartsýni um vatnsöflun á svæðinu og tók uppbygging innviða mið af því.  Síðar kom í ljós að vatnsöflunin varð ekki eins mikil og vonir stóðu til og því eru innviðirnir töluvert við vöxt ef svo má segja.

Jarðhitasvæðin í Eyjafjarðarsveit hafa töluvert verið rannsökuð á undangengnum árum með það í huga að finna þar meira vatn og skapa þar með tækifæri til að nýta betur þá innviði sem til eru á svæðinu. Borun nýrrar holu (HN-13) á mörkum jarðanna Hrafnagils og Botns á liðnu sumri er hluti af þessum áætlunum en eins og íbúar og gestir Eyjafjarðarsveitar hafa sjálfsagt tekið eftir hefur jarðborinn NASI frá Ræktunarsambandi Flóa og Skeiða verið að störfum þar frá því í maí sl.. Inn í þessa ákvörðun spilaði einnig sú staðreynd að önnur holan af tveimur á svæðinu hefur ekki gefið jafn mikið vatn og skyldi, þar sem rennsli úr henni hefur minnkað vegna tjóns á dælum o.fl., sem leiddi til þess að hluti búnaðar hrundi ofan í holuna. Því var ákveðið að bora nýja holu á svæðinu með það að markmiði að skapa nýja leið fyrir jarðhitavatnið.

En eins og sagan kennir okkur þá er borun eftir heitu vatni sýnd veiði en ekki gefin og sú hefur því miður orðið raunin með holu HN-13 á Hrafnagili.  Borun var hætt í 1.905 metra dýpi og bor og bormenn nú farnir af svæðinu.

Borunin gekk erfiðlega og holan gefur nánast ekkert vatn.  Á tímabili stóðu vonir til þess að borinn væri að komast í lek jarðlög þar sem svonefnt skolvatn sem notað er í boruninni virtist eiga leið út úr holunni en ekki upp úr henni.  Við prófanir og svonefndar örvunaraðgerðir kom í ljós að lekt er ekki fyrir hendi og jarðhitavatn því ekki að streyma inn í holuna.

Því liggur fyrir að holan verður ekki virkjuð og holan mun verða minnisvarði um að í orkuöflun fyrir hitaveitu er ekkert sjálfgefið og það þrátt fyrir að borað sé í svæði sem er að gefa vatn í holum í nokkurra metra fjarlægð.

Þar sem framkvæmdum er nú lokið mun Norðurorka á næstu vikum fara í frágang á og við borsvæðið.

Starfsfólk Norðurorku þakkar íbúum í Eyjafjarðarsveit kærlega fyrir þolinmæðina og gott samstarf í þessu verkefni sem og öðrum.  

 

Jarðborinn NASI við borun að Hrafnagili sumarið 2016