12. feb 2026

Breyting á gjalddaga og eindaga orkureikninga

Nú hafa verið gerðar breytingar á gjalddaga og eindaga orkureikninga sem sendir eru mánaðarlega til viðskiptavina Norðurorku. Með breytingunni er Norðurorka að koma til móts við óskir viðskiptavina sem hafa bent á möguleg óþægindi sem fylgja því að hafa eindaga orkureikninga um miðjan mánuð.

Framvegis mun gjalddagi orkureiknings verða 20. hvers mánaðar (var áður 5. hvers mánaðar) og eindaginn verða 2.-5. næsta mánaðar á eftir (í stað 15. eins og áður var). Reikningar vegna janúar, sem berast viðskiptavinum okkar nú í febrúar, munu því berast seinna en venjulega og hafa gjalddaga 20. febrúar og eindaga 2. mars.

Eins og áður segir þá er breytingin fyrst og fremst gerð til að koma til móts við óskir viðskipavina okkar en um leið er tekið skref í átt að enn betri þjónustu.

Fyrir frekari upplýsingar má hafa samband við þjónustufulltrúa okkar í síma 460-1300 eða á no@no.is