Á grundvelli breytinga á samþykktum Norðurorku sem gerðar voru á síðasta aðalfundi félagsins leitar Akureyrarbær nú eftir tveimur hæfum og áhugasömum einstaklingum til setu í stjórn Norðurorku. Við val á stjórnarmönnum verður horft til þess að stjórnin í heild búi yfir fjölbreyttri þekkingu, reynslu og hæfni sem styður við stefnumótun, eftirlit og áframhaldandi þróun félagsins. Þá verður litið til kynjasjónarmiða ef hallar á annað kynið í stjórninni.
Stjórn félagsins fer með stefnumótandi forystu og eftirlit með rekstri Norðurorku og stuðlar að ábyrgum, skilvirkum og sjálfbærum rekstri í þágu eigenda, viðskiptavina og samfélagsins.
Helstu atriði sem litið verður til varðandi þekkingu og reynslu við val á einstaklingum til stjórnarsetu eru:
Að jafnaði skulu stjórnarmenn hafa lögheimili eða fasta búsetu í Akureyrarbæ, í samræmi við eigendastefnu Akureyrarbæjar. Heimilt er að víkja frá því ef sérstök rök mæla með, svo sem vegna sérþekkingar viðkomandi. Þá skulu þeir sem sækjast eftir sæti í stjórn Norðurorku uppfylla skilyrði um hæfi. Samkvæmt samþykktum Norðurorku skulu þeir sem leitað er eftir vera óháðir hluthöfum félagsins. Kjörnir fulltrúar hluthafa og starfsfólk hlutahafa telst ekki óháð hluthöfum, en að öðru leyti skal miðað við óhæði samkvæmt skilgreiningu leiðbeininga Viðskiptaráðs o.fl. um góða stjórnarhætti hverju sinni.
Áhugasamir einstaklingar sem telja sig uppfylla framangreind skilyrði eru hvattir til að senda ferilskrár og kynningarbréf ásamt upplýsingum um framangreind atriði til tilnefningarnefndar Akureyrarbæjar á netfangið tilnefningarnefnd@akureyri.is ekki síðar en 16. september 2026.
Tilnefningarnefnd Akureyrarbæjar annast móttöku og mat á framboðum og leggur fram tillögu um skipan stjórnar í samræmi við eigendastefnu Akureyrarbæjar og hlutverk Norðurorku.
Ferlið miðar að faglegu og gagnsæju mati við undirbúning tillögu um skipan stjórnar Norðurorku.
Opnunartími Norðurorku
Opið virka daga kl. 8-12 og 13-15