15. okt 2026

Endurvirkjun vatnslindar í Sellalandslindum

Í september var unnið að endurvirkjun vatnslindar í Sellandslindum. Hvaðan kemur vatnið í lindirnar, hvernig komum við því til notenda og hvernig er staðið að gæðaprófunum og vatnsvernd?

Pétur Freyr Jónsson, yfirvélfræðingur í kerfisstjórn Norðurorku, svarar þessum spurningum og fleiru til í myndböndunum hér að neðan.

Kerfið er í raun nokkuð einfalt en um leið flókið, því vatnið þarf að standast ákveðnar gæðakröfur áður en því er hleypt á kerfið sem liggur inn á heimili fólks á starfssvæði NO. Sömuleiðis þarf að fylgjast vel með því að vatnslindirnar séu ekki mengaðar og að umgengisreglur á vatnsverndarsvæðum séu virtar að fullu.  Kalda vatnið flokkast sem matvara og því eru gerðar strangar kröfur um vatnsvernd.

Ýmislegt getur valdið mengun t.d. rusl, olía, skólp eða önnur efni sem komast í gegnum jarðlögin og í vatnið sem rennur neðanjarðar. Því betur sem við göngum um vatnsverndarsvæðin og erum meðvituð um mikilvægi þess að láta strax vita vakni grunur um mengun, því betur getum við tryggt hreint vatn fyrir alla framtíð.

Verði mengunarslys innan vatnsverndarsvæðis er lykilatriði að tilkynna það strax. Hafa ber í huga að að jafnvel það sem kann að virðast minniháttar óhapp getur gert vatnstökusvæði óstarfhæft til lengri tíma.