13. apr 2026

Framkvæmdir og götulokanir í kringum Lækjargötu

Komið er að endurnýjun á regnvatnslögn í Lækjargötu, frá Spítalavegi og til austurs í gegnum gangstétt að Hafnarstræti.
Samhliða endurnýjun regnvatnslagnarinnar verður einnig unnið að endurnýjun kaldavatnslagnar, rafveitulagnar og gerð nýrra tenginga við hitaveitu.

Framkvæmdir hefjast um miðjan apríl og standa yfir í rúma tvo mánuði. Verkinu má í grófum dráttum skipta í tvennt. Fyrst verða lagnir í stígnum norðan Laxdalshúss og upp í Aðalstræti endurnýjaðar. Síðan verður endurnýjað upp að gatnamótum Spítalavegar og Lækjargötu.

Nauðsynlegt er að loka götum, ýmist tímabundið eða á meðan verkinu stendur.

Við erum meðvituð um þau óþægindi sem framkvæmdirnar kunna að valda íbúum og vegfarendum. Við vonumst eftir gagnkvæmum skilningi og teljum að með samvinnu og góðum vilja sé hægt að leysa þau mál sem kunna að koma upp.

Sjá kort af vinnusvæði, hjáleiðir og fleira á skýringarmynd hér að neðan. Athugið að myndin sýnir fyrirhugaðar götulokanir, en sem fyrr segir verða göturnar ekki lokaðar allan tímann á meðan framkvæmdum stendur. Þegar kemur að því að þvera Aðalstræti og Lækjargil verður grafið upp, verður nauðsynlegt að loka hluta af Aðalstræti, Lækjargötu og Spítalavegi.