18. sep 2026

Framkvæmdir við Krossanesbraut og Undirhlíð

Í næstu viku hefjast framkvæmdir við endurbætur á gatnamótum Undirhlíðar og Krossanesbrautar á vegum Akureyrarbæjar og samhliða því munu verktakar á vegum Norðurorku ráðast í endurnýjun regnvatnslagna. Verkefninu er skipt upp í nokkra áfanga sem hafa mismunandi áhrif á umferð vegfarenda, bæði gangandi og ökutækja.

Í fyrsta áfanga verður Krossanesbraut lokað í báðar áttir, til norðurs frá gatnamótunum og til suðurs rétt sunnan við gatnamótin við Þverholt. Hjáleið er um Hörgárbraut. Þessi lokun hefst mánudaginn 21. september.

Í seinni áföngum verða gatnamótin ýmist alveg lokuð eða opin að hluta, en það fer eftir framvindu framkvæmda við bæði gatnamótin og regnvatslögnina. Ekki er hægt að tímasetja nákvæmlega hvenær seinni áfangar hefjast.

Við erum meðvituð um þau óþægindi sem framkvæmdirnar kunna að valda íbúum og vegfarendum. Við vonumst eftir gagnkvæmum skilningi og teljum að með samvinnu og góðum vilja sé hægt að leysa þau mál sem kunna að koma upp.

Skýringarmyndin hér að neðan sýnir lokunarsvæðið í fyrsta áfanga og hjáleið um Hörgárbraut.