30. apr 2026

Fundur með frambjóðendum til sveitarstjórna

Frambjóðendum til sveitarstjórna, í þeim sveitarfélögum sem eiga hlut í Norðurorku, var boðið á kynningarfund um starfsemi fyrirtækisins miðvikudaginn 29. apríl. Vel var mætt til fundarins og fulltrúar langflestra framboð hlustuðu á erindi forstjóra og starfsfólks, og spurðu þau spjörunum úr.
 
Fyrstur í pontu var Eyþór Björnsson, forstjóri, en hann fór yfir grunnþættina í starfsemi Norðurorku og uppbyggingu fyrirtækisins. Einnig fór hann yfir helstu verkefnin í stærra samhenginu og samstarfið við sveitarfélögin sem eiga fyrirtækið. Því næst fjallaði Erla Björg Guðmundsdóttir Valgerðardóttir um mannuðsmálin, vinnustaðarmenninguna, aldursbil og ólíka menntun og bakgrunn starfsfólks. Áherslan á góð og jákvæð samskipti á milli ólíkra deilda væri lykilatriði í starfsánægju og góðum framgangi verkefna þvert á öll svið fyrirtækisins.
 
Gunnur Ýr Stefánsdóttir, sviðsstjóri á skrifstofu forstjóra, fór yfir öryggismál og öryggismenningu innan fyrirtækisins, umhverfismál, vatnsveitu og áskoranir í vatnsvernd. Fjallaði hún í því samhengi um mikilvægi þessa að standa vörð um vatnsverndarsvæðin og bílslys sem hafa orðið innan svæðanna sem kölluðu á skjót viðbrögð til að koma í veg fyrir mengun. Því næst steig í pontu, Stefán H. Steindórsson, sviðsstjóri á veitu- og tæknisviði en hann fjallaði almennt um veitumál, hitaveitu, rafveitu, vatnsveitu og fráveitu. Fór hann meðal annars yfir uppbyggingu hreinsistöðvarinnar á Óseyri, áskoranir í hreinsun skólps og úrganginn sem safnast upp í hreinsistöðinni. Einnig fjallaði hann um áskoranir í hitaveitu og núverandi getu borhola Norðurorku í samhengi við orkunotkun viðskiptavina.
 
Að lokum fjallaði Hjalti Steinn, sviðsstjóri á framkvæmdasviði, betur um áskoranir í hitaveitunni og ábyrga notkun auðlindarinnar. Samfélagið allt þurfi að gera sér betur grein fyrir því hvað felst í ábyrgri notkun á heitu vatni og kostnaði við að bora eftir heitu vatni. Í því samhengi hefði Norðurorka reynt að miðla upplýsingum um ábyrga notkun, meðal annars með verkefninu „Hitamál.“ Þá fór Hjalti yfir stór verkefni framkvæmdasviðs á undanförnum árum, á borð við Hjalteyrarlögn, hreinsistöð fráveitu, og nýtingu á vatni úr Vaðlaheiðargöngum.