26. jan 2016

Græna trektin

Akureyringar eru snillingar í flokkun og endurvinnslu. Hafa reyndar verið í fararbroddi mjög lengi í þeim efnum. Nú höldum við áfram og tökum fyrir olíu og fitu.

Nú geta Akureyringar (og viðskiptavinir á starfssvæði Norðurorku) nálgast GRÆNU TREKTINA í þjónustuveri Norðurorku, þjónustuanddyrir Ráðhússins og á gámasvæðinu Réttarhvammi frá og með næstkomandi fimmtudegi.  Þá verður trektin kynnt á Glerártorgi á föstudaginn milli kl. 16:00 og 18:30 og laugardaginn kl. 12:00 - 16:00.

Áherslan er á endurvinnslu með því að koma notaðri olíu og fitu til Orkeyjar sem býr til lífdísel úr henni sem aftur nýtist í samgöngum eða með því að hún fer í jarðgerð hjá Moltu (þ.e. sú fita sem fer í "græna dallinn").

Áherslan er líka á að koma í veg fyrir að fitan lendi í fráveitukerfinu og búi þar til stíflur og fari illa með dælur og annað búnað. Því er mikilvægt að fanga fituna við upptök hennar það er á heimilum og í fyrirtækjum í stað þess að setja hana í fráveituna. Flytja hana í gegnum kerfi hennar ef svo má segja og reyna síðan að hreinsa hana í hreinsistöð, með  miklum tilkostnaði, áður en fráveituvatnið fer í útrás og í viðtakan Eyjafjörð.

Við gerum okkur grein fyrir því að hér er um langtíma verkefni að ræða þar sem mikilvægt er að ná góðu samstarfi við bæjarbúa, en ekki síður veitingastaði og eldhús í fyrirtækjum víðsvegar um bæinn.

Inn í trektinni eru eftirfarandi leiðbeiningar (smellið á myndirnar til að fá stærri mynd):

Græna trektin leiðbeiningar 1 janúar 2016

Græna trektin leiðbeiningar 2 janúar 2016

 

Græna trektin átak í söfnun olíu og fitu auglýsing janúar 2016