25. ágú 2026

Hamarstígur lokaður vegna framkvæmda

Í sumar hefur Norðurorka unnið að því að fjarlægja hitaveitubrunna í Hamarsstíg, Engimýri og Víðimýri auk þess að fara í spennubreytingar í Engimýri. Sú vinna hefur gengið vel í góðu samstarfi við íbúa og verktaka, en óhjákvæmilegt er að svo viðamiklar framkvæmdir hafi áhrif á daglegt líf íbúa.

Nú er komið að seinni hluta framkvæmda á þessu svæði. Akureyrarbær mun endurnýja gangstéttir og malbika göturnar og samhliða því mun Norðurorka endurnýja kaldavatnslögn, fráveitu regnvatns og rafstrengi í Hamarstíg.


Eitt af markmiðum framkvæmdanna er að auka umferðaröryggi fyrir bæði bíla og gangandi vegfarendur og minka umferðarhraða. Gangstéttar verða til dæmis breikkaðar í þessum tilgangi. Í Hamarstíg kemur einnig upphækkuð gönguþverun ásamt þrengingum við gatnamót Engimýrar og Víðimýrar.

Þessum seinni hluta má skipta í tvennt í grófum dráttum. Fyrst verða lagnir í Hamarstíg endurnýjaðar frá gatnamótum við Mýrarveg og niður að gatnamótum við Víðimýri. Í seinni hlutanum verður svo unnið frá gatnamótum Hamarstígs við Víðimýri og niður að gatnamótum við Byggðaveg.

 

Nauðsynlegt er að loka götum tímabundið á meðan framkvæmdum stendur og unnið verður eins hratt og mögulegt er. Sjá yfirlitsmyndir hér að neðan fyrir fyrri og seinni hluta framkvæmda.

Fyrri hluti

Seinni hluti