30. júl 2026

Heimsókn frá Jarðhitaskóla Sameinuðu þjóðanna

Þriðjudaginn 28. júlí komu nemendur frá Jarðhitaskóla Sameinuðu þjóðanna í heimsókn til Norðurorku, til að fræðast um starfsemi fyrirtækisins og rekstur hitaveitu á starfssvæði NO. Í fjölda ára hefur heimsókn frá skólanum verið fastur liður yfir sumartímann, en hópurinn fer víða um Norðurland og skoðar fleiri svæði á ferðalaginu.

Sigurveig Árnadóttir, verkefnastjóri rannsókna og viðhalds, og Pétur Freyr Jónsson yfirvélfræðingur fóru með hópinn í leiðsögn um helstu vinnslusvæði hitaveitu á svæðinu, Laugaland og Hjalteyri. Þar fengu þau að skoða dælustöð og borholuskúra, þar sem Pétur Freyr útskýrði hvernig kerfin virka. Á meðan keyrt var á milli svæðanna sagði Sigurveig frá sögu hitaveitunnar og fór yfir þróun í nýtingu jarðhita á svæði Norðurorku.

Í lok heimsóknarinnar var haldið í höfuðstöðvar Norðurorku þar sem Sigurveig, sem er doktor í jarðfræði, sagði betur frá leit að jarðhita á svæðinu undanfarin ár. Einnig fór hún yfir áskoranir og tækifæri til framtíðar. Pétur Freyr gaf nemendum innsýn í skjákerfi hitaveitunnar og hvernig hægt er að stýra hitaveitunni frá skrifstofunni. Að lokum sagði Rögnvaldur Már Helgason, verkefnastjóri upplýsingamiðlunar og kynningarmála, frá sögu Norðurorku og starfsemi fyrirtækisins sem snýr að annari veitustarfsemi en hitaveitu. 

Jarðhitaskóli Sameinuðu þjóðanna er einn fjögurra skóla GRÓ, þekkingarmiðstöðvar þróunarsamvinnu. Hlutverk skólans er að veita ungum sérfræðingum frá þróunarlöndunum þjálfun í rannsóknum og nýtingu jarðhita. Skólinn er mikilvægur þáttur í þróunaraðstoð Íslendinga og á 45 árum hefur skólinn útskrifað hátt í 900 nemendur.