16. ágú 2017

Heitavatnsrof í innbænum í dag

Vegna vinnu við stofnkerfi hitaveitu verður LOKAÐ fyrir HEITT VATN suður Hafnarstræti frá og með nr. 47, Aðalstræti suður fyrir Skautahöll, Spítalavegur, Tónatröð og Lækjargötu í dag, miðvikudaginn 16. ágúst 2017. Áætlaður tími er frá kl. 8.00 og fram eftir degi.

Um leið og við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem lokunin kann að valda minnum við á "Góð ráð vegna heitavatnsrofs" sem nálgast má hér.

Hér að neðan má sjá mynd af lokunarsvæðinu.

Bestu kveðjur,

Starfsfólk Norðurorku